Um Flatbökuna

UM FLATBÖKUNA


Íslenska Flatbakan opnaði í febrúar 2015. Staðurinn var hugmynd Valla en hann fékk með sér bróðir sinn Gumma í lið til að koma staðnum af stað. Bræðurnir voru svo heppnir að þekkja hann Guðjón Val, handboltastjörnu, og náðu að sannfæra hann um að taka þátt í þessu ævintýri með sér.


Allt frá því að staðurinn opnaði í Bæjarlind 2, Kópavogi, hefur áherslan verið að frábærar pizzur og mjög góða þjónustu. Hugmyndin var alltaf að búa til umhverfi þar sem fólk þætti gaman að koma og fá sér góðan mat. Viðtökurnar í Bæjarlindinni hafa verið frábærar og fram úr öllum vonum.


Við erum ótrúlega spennt fyrir komandi árum og tækifærum og hlökkum til að halda áfram að bjóða ykkur upp á ótrúlega góðan mat á góðum stað.


Share by: