Pop Up Pizza

Pop Up Pizza

Hlaðborð

Frábær lausn fyrir fyrirtæki og einstaklinga

Brúðkaup

Gerðu brúðkaupið þitt sérstakt með mat sem allir elska.

Fermingar

Ef fermingabarnið fær að ráða þá velur það pizzu.

Veislur

Hvert sem tilefnið er þá getur Pop Up pizza  gert atburðinn einstakan.

Starfsmannagleði

Fullkomið í starfsmannagleðina. Einfalt, fljótlegt og hagkvæmt.

Daggjald

3.000 kr.

Á mann

 Mánudaga til föstudaga
frá 11:00 - 17:00
Pizzur bornar fram á hlaðborði.

Kvöldgjald

3.250 kr.

Á mann

Mánudaga til fimmtudaga
frá 17:00 - 22:00
Pizzur bornar fram á hlaðborði.

Helgargjald

3.500 kr.

Á mann

Föstudaga frá 17:00 - 22:00
Allan daginn um helgar
Pizzur bornar fram á hlaðborði.

HVAÐ ER Í BOÐI?

Þú velur allt að 3 pizzur af matseðlinum. Þess utan búum við til blöndu af einfaldari pizzum með 1-3 áleggjum, sem hentar vel fyrir börn og þá sem vilja einfaldar pizzur. Verðin miðast við að hver og einn sé að fá 3/4 úr 12 tommu pizzu.

Sneiðapartý

Hentar vel fyrir stærri viðburði, árshátíðar, miðnætursnarl eða bara í partýið.

Árshátíð

Bryddaðu upp á stemninguna með skemmtilegum mat.

Miðnætursnarl

Haltu genginu gangandi með bragðgóðu léttmeti.

Stærri viðburðir

Er ráðstefna? Leystu matinn með Bökubílnum.

Partý Partý Partý

Ekkert partý klikkar með geggjuðum mat!

Daggjald

2.000 kr.

Á mann

 Mánudaga til föstudaga
frá 11:00 - 17:00
Sneiðar afgreiddar beint úr lúgunni.

Kvöldgjald

2.250 kr.

Á mann

Mánudaga til fimmtudaga
frá 17:00 - 22:00
Sneiðar afgreiddar beint úr lúgunni.

Helgargjald

2.500 kr.

Á mann

Föstudaga frá 17:00 - 22:00
Allan daginn um helgar
Sneiðar afgreiddar beint úr lúgunni.
HVAÐ ER Í BOÐI?
Þú velur þrjár mismunandi tegundir af pizzum með 1-2 áleggjum (gott er að hafa þriðju tegundina sem margarita). Verðin miðast við að hver og einn sé að fá 1/2 úr 12 tommu pizzu.

ALGENGAR SPURNINGAR

Finnuru ekki svarið? Sendu okkur línu á [email protected]
  • HVAÐ ER POP UP PIZZA?

    Pop Up Pizza  er snyrtilegur matarvagn með steinofni að bestu gerð!  Með því að fá okkur til að sjá um matinn í þínum viðburði ertu að tryggja góð gæði og sjóðandi heita pizzu beint inn á borð eða beint út úr lúgunni. Slepptu köldu snittunum og bjóddu uppá alvöru pizzur!

  • HVAÐ KOSTAR?

    Verðskráin er sniðin að þínum þörfum. Þú velur á milli þess að vera með hlaðborð eða bjóða upp á sneiðapartý. Við rukkum svo misjafnlega eftir því hvenær þú vilt fá bílinn til þín. Verðin eru á næstu síðu og skiptast upp í hlaðborð vs. sneiðapartý og hvenær veislan er. Greitt er miðað við fjölda manns og magn áætlað út frá þeim fjölda. Þú velur hvaða pakki hentar þér!


    Verðskráin er hér fyrir ofan!

  • ER LÁGMARKS FJÖLDI?

    Við miðum við að 50 manns sé lágmarkið fyrir hlaðborð og 60 manns lágmark í sneiðarpartý.

  • HVAÐ ER Í BOÐI?

    Hlaðborð: Þú velur allt að 3 pizzur af matseðlinum á bls. 3. Þess utan búum við til blöndu af einfaldari pizzum með 1-3 áleggjum, sem hentar vel fyrir börn og þá sem vilja einfaldar pizzur. Verðin miðast við að hver og einn sé að fá 3/4 úr 12 tommu pizzu.


    Sneiðapartý: Þú velur þrjár mismunandi tegundir af pizzum með 1-2 áleggjum (gott er að hafa þriðju tegundina sem margarita). Verðin miðast við að hver og einn sé að fá 1/2 úr 12 tommu pizzu.

  • ER VEGAN / GRÆNMETIS / GLÚTEINLAUST Í BOÐI?

    Já að sjálfssögðu! Glúteinlausi botninn kostar reyndar auka 750kr stk. Gott væri fyrir okkur að vita sirka fjölda fólks sem óskar eftir einhverju af þessu þrennu svo við getum áætlað rétt.

  • ERU ÞIÐ MEÐ BORÐBÚNAÐ?

    Við getum mætt með pizzu pappadiska og sérvíettur . Þú þarft að skaffa postulín diska og hnífapör viljið þið bjóða uppá það.

  • ER EITTHVAÐ ANNAÐ SEM ER GOTT AÐ VITA?

    Það er gott að hafa það á bakvið eyrað að bíllinn er mjög stór (8 metrar á lengd) og það þarf að gera ráð fyrir góðri aðkomu fyrir hann og að hann sé helst með stæði fyrir utan eða nálægt innganginum þar sem hann kæmist einnig í rafmagn (venjulegt rafmagnstengi er nóg). Við erum vanalega mættir 40-60 mín áður en matur er áætlaður. Einnig er mikilvægt að kynna sér skilmálana okkar sem eru hér neðst í skjalinu.

  • ERU EINHVER ÖNNUR GJÖLD?

    Akstur: +500 kr./km utan höfuðborgarsvæðis (Hámark 100 km fjarlægð og aðeins á malbikuðum vegum. Reiknað er km fjöldi báðar leiðir).

MATSEÐILL

Þú velur allt að 4 af listanum

Menu

Skilmálar og fyrirvarar

01 Verð

Þessi verðskrá gildir fyrir árin 2023 – Sé viðburður á rauðum degi eða lögbundnum frídegi gildir helgarverðskrá. Sé viðburður á stórhátíðar degi leggst álag ofaná skmv. Kjarasamningi eflingar.

02 Staðfesting

Staðfestingargjaldið er 40.000 kr. og þarf að greiða það til að festa viðburð á umbeðinni dagsettningu. Staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt ef hætt er við þegar 2 mánuðir eða minna er í viðburðinn. Staðfestingargjald er svo dregið frá heildarupphæð þegar gert er upp að loknum viðburði.

03 Stærðir&Magn

Allar bökurnar okkar eru 12 tommur. Magn er áætlað miðað við fjölda gesta sem gefið er upp þannig það er mikilvægt að hafa þá tölu frekar nákvæma.

04Aðstæður

Vagninn er stór og þarf að hafa það í huga þegar hann er panntaður. Vagninn á t.d. erfiðara með að keyra inn þröngar götur, á vegum sem eru ekki malbikaðir eða mjög holóttir. Einnig er gott að gera alltaf ráð fyrir plássi sem næst inngangi. Vagninn þarf svo að geta tengt sig í rafmagn (við mætum með langa rafmagnssnúru) Allt þetta er að sjálfsögðu unnið í samráði við starfsmenn Pop Up Pizza. Sé ekki kostur á að tengjast í rafmagn þá leggst auka 10.000kr á fyrir leigu á rafstöð.

05Veður

Ef það spáir slæmu veðri á þeim degi sem atburður er settur eða færð á vegum er ekki ákjósanleg þá áskiljum við okkur réttinn til þess að hætta við atburð og endurgreiðum staðfestingargjald. Sama gildir ef við náum ekki að mæta í atburð vegna ófyrirsjáanlega aðstæðna, t.d. vegna bilana á vagninum eða bílsins sem dregur hann.

Share by: