kaerleikspizza
Í tilefni af 10 ára afmæli Veitingastaðarins Flatbökunnar hefur eigendurnir og Tolli Morthens tekið höndum saman og bjóða nú íslendingum að gæða sér á ljúffengum kærleiks pizzum í febrúar. Pizzurnar koma í tveimur tegundum, kjöt og grænmetis en báðar þeirra eru seldar til stuðnings Sollusjóðsins sem menntun, sjálfstyrkingu og sérfræðiaðstoð fyrir fanga af lokinni betrunarvist. “Það hefur lengi verið þrætuepli meðal málsmetandi manna hvort ananas eigi heima pizzum. Við sneiðum hjá þeim átökum og segjum að kærleikurinn eigi svo sannarlega heima á pizzum” segir Tolli Morthens sem stendur í stafni verkefnisins ásamt félögum sínum.

Leikgleðin er nauðsynleg Tolli stofnaði ásamt góðum hópi góðgerðarfélagið Bata sem rekur Batahús, sem er úrræði fyrir fanga að báðum kynjum sem koma á ný út í samfélagið í bata. “Það er nauðsynlegt að brjóta sig öðru hvoru út úr alvarleika verkefnanna og bjóða upp á smá leikgleði. Þetta verkefni er leið fyrir almenning að leggja okkur lið í verkefnum Sollusjóðsins en ekki síður tækifæri til að ræða málaflokkinn sem sannarlega stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum. Það þarf að gera það jöfnum höndum en ekki bara þegar útaf” bæti hann við.
Bjóða nýjum félagsmálaráðherra í kærleikspizzu “Fyrst opnuðum við Batahús fyrir karla sem voru að koma út í lífið eftir betrun en svo fylgdum við því eftir með kvennúrræði ári seinna. Skilningur og stuðningur ráðherra félagsmála hefur skipt miklu máli. Fyrst með Ásmyndi Einari og síðar Guðmundi Inga. Okkur hlakkar til að kynna úrræðin fyrir Ingu Sæland nýjum félagsmálaráðherra.

Sollusjóður
Sollusjóður var stofnaður árið 2021 af Bata góðgerðarfélagi og starfar sjálfstætt samhliða því. Tilgangur sjóðsins er að styðja skjólstæðinga Bata við að aðlagast samfélaginu að lokinni fangavist, meðal annars með menntun, sjálfstyrkingu og sérfræðiaðstoð. Frá stofnun hefur Sollusjóður veitt styrki að andvirði tæplega 13 milljóna króna í um 160 mismunandi verkefni. Styrkirnir hafa meðal annars farið í vímuefnameðferð, sjúkraþjálfun, grunn tannlæknaþjónustu, fjölbreytt námskeið og nám í framhaldsskólum. Sjóðurinn gegnir lykilhlutverki í bataferli skjólstæðinga Bata og gerir þeim kleift að nýta sér fjölbreyttar bataaðferðir. Fjármögnun styrkja hefur komið úr ýmsum áttum, en að stórum hluta frá nánasta umhverfi félagsmanna Bata góðgerðarfélags.
